
Síðustu vikur hefur lítið farið fyrir eldamennsku og myndarlegheitum á þessu heimili en það mun sko brátt breytast þegar við fjölskyldan erum flutt, barnið komið útúr maganum á mér og ég komin í fæðingarorlof. Ekki skemmir fyrir að brátt get ég notað nýju uppþvottavélina mína. Mikið mun hún nú létta störfin, þá sérstaklega þegar góða gesti ber að garði. Hef sjaldan verið jafn spennt fyrir nýju tæki.
Langaði að elda „síðustu kvöldmáltíðina“ á Skúlagötu því næstu dagar fara í pökkun/þrif og flutningastúss. Gerðum einnig smá brunch fyrir okkur litlu fjölskylduna í morgun og heimasætan fékk að hjálpa til við eggjahræru og pönnukökugerð. Pínu tilfinninganæmi kom upp, enda margar góðar minningar en við keyptum þessa íbúð fyrir 11 árum. En það er kominn tími á breytingar og stundum koma þær í stórum skömmtum.
Ekki láta þennan langa innhaldslista hræða ykkur, það tekur alltaf smá tíma þegar maður gerir eitthvað í fyrsta skipti en þetta er frekar auðvelt og ofsalega gott. Þessi uppskrift er úr frábærri sænskri uppskriftabók, Veggie. Tók of seint eftir að þetta er frekar stór uppskrift en ég frysti bara afganginn af buffunum.
Sesam- og linsubaunabuff með jógúrtsósu
(Síðasta kvöldmáltíðin á Skúló)
- 2 1/2 dl grænar linsur eða gourmet linsur (skolaðar)
- 5 dl vatn
- 2 lárviðarlauf
- 3 msk ólífuolía
- 1 stór laukur (smátt skorinn)
- 2 sellerístilkar( í litlum teningum)
- 2,5 cm ferskt engifer (rifið)
- 1/2 tsk chiliflögur
- 100 g sesamfræ
- 1 1/2 dl brauðrasp
- 1 tsk cumin
- 1/2 tsk turmeric
- lúka af steinselju (hökkuð)
- 2 msk sítrónusafi
- 1 tsk salt eða eftir smekk
Jógúrtsósa
- 200 g hreint jógúrt
- 1 tsk cumin
- 1 tsk koriander (átti það ekki til)
- 1 msk sítrónusafi
- smá salt og pipar
Látið linsunar ásamt vatni og lárviðarlaufum í pott með loki og fáið upp suðu. Látið sjóða í smá tíma og lækkið síðan hitann, látið malla í 20-30mín eða þangað til þær eru nokkuð mjúkar en alls ekki maukaðar. Hellið vatni af.
Á meðan linsurnar malla þá skerið allt niður sem þarf að skera. Undirbúið jógúrtsósuna. Þegar linsurnar hafa verið í pottinum í ca. 15 mín, byrjið þá að steikja laukinn í potti, bætið svo við sellerí, mýkið í 3 mín, bætið þá útí engiferi, cumin, turmeric, chiliflögum,sesamfræjum og brauðraspi. Hrærið og takið af heitri plötunni eftir 1-2 mín. Bætið þá útí linsum, sítrónusafa, salti og steinselju. Hrærið saman og notið síðan töfrasprota (annars matvinnsluvél) til að mixa þessu saman en samt ekki alveg að mauki.
Mótið um 12 buff, steikið á pönnu á meðalháum hita, 2-3 mín á hvorri hlið eða þangað til gyllt og girnilegt. Ég bar þetta svo fram með forsoðnum parísarkartöflum (letikartöflur) sem ég steikti rétt í smá smjöri og tómata/snjóbauna/steinselju salati með skvettu af olífuolíu, sítrónu og hafsalti.
- Aftur á forsíðu







Hér kemur ein ágætis „í miðri viku dálítið holl en góð“ uppskrift. Veit ekki hvort eggjabaka sé betra nafn? Þetta varð alla vega útkoman og rann þetta vel ofan í heimilisfólkið, ja í tvo af þremur. Heimasætan er orðin heldur dyntótt þegar kemur að matmálstímum og við foreldrarnir alveg á leiðinni að taka á málinu! Uppskriftir í vinnslu: heilhveitispaghetti með chili og möndluflögum, risotto með grilluðum paprikum og rósmarín og sítrónu/lavanderkökur