Monthly Archives: febrúar, 2010

Baka með sætum kartöflum

Þessa böku fékk ég fyrst hjá Kristínu Boland, vinkonu minni og matgæðingi í Mosó. Ákvað að bjóða upp á svona í afmælinu hennar Sögu og var hún fljót að klárast. Ég er frekar löt og finnst mjög þreytandi að vinna með deig svo ég kaupi bara svona smjördeigsrúllur, fæ þær stundum í Bónus, frá sama [...]

Indverskt linsupaté

Gleðilegan föstudag! Upp á síðkastið hef ég verið fremur sólgin í indverskan mat og hef því verið að prófa ýmsar útgáfur. Lengi langað að útbúa linsubauna paté og ákvað að hafa það með indversku ívafi. Þetta tók smá tíma, þá aðallega tíminn inni í ofni en mér fannst það alveg þess virði. Reyndar var æsingurinn [...]

Lavander/sítrónu kökur og skonsur

Sat eitthvert kvöldið við sjónvarpsgláp sem hefur því miður færst í aukana eftir að ég varð ólétt. Í einum þættinum var verið að bjóða upp á lavander og sítrónukökur og það var eins og við manninn mælt, ég fékk þetta á heilann og gat ekki hætt að hugsa um þessar kökur. Endaði með að finna [...]

Möndlu- og chili spaghettí

Eins og ég hef nefnt í eldri færslu, þá eru mánudagar oftast pastadagar og þriðjudagar súpudagar á heimilinu. Ég er frekar heilalaus eftir vinnu þá daga og þá gott að vera búin að þrengja valið aðeins. Ég gef sjaldan upp fyrir hversu marga uppskriftirnar eru en ætla að reyna að hafa það í huga. Oftast [...]

Eggjakaka með indversku ívafi

Hér kemur ein ágætis „í miðri viku dálítið holl en góð“ uppskrift.  Veit ekki hvort eggjabaka sé betra nafn? Þetta varð alla vega útkoman og rann þetta vel ofan í heimilisfólkið, ja í tvo af þremur. Heimasætan er orðin heldur dyntótt þegar kemur að matmálstímum og við foreldrarnir alveg á leiðinni að taka á málinu! [...]