
Þessa böku fékk ég fyrst hjá Kristínu Boland, vinkonu minni og matgæðingi í Mosó. Ákvað að bjóða upp á svona í afmælinu hennar Sögu og var hún fljót að klárast. Ég er frekar löt og finnst mjög þreytandi að vinna með deig svo ég kaupi bara svona smjördeigsrúllur, fæ þær stundum í Bónus, frá sama merki og pizzarúlludeig sem er í kælinum. Mjög þægilegt og fljótlegt.
Baka með sætum kartöflum
- 150 g frosið spínat (þíða og kremja úr vökva) (hef líka sleppt spínati)
- 1 stór eða 2 miðlungs sætar kartöflur, skornar í teninga
- 3 egg
- 150 g rjómi eða matreiðslurjómi
- slatti af ost, ég notaði fetaost og rifin, dreifa jafnt yfir, jafnvel skera aðeins fetan
- salt og pipar
- 1/2 tsk múskat
Sjóðið kartöfluteningana en gætið þess að þær verði ekki of mjúkar. Hitið ofninn í 200° Ég lét síðan sjóðandi vatn yfir spínatið, og kramdi svo vökvan úr með kartöflupressu. Smyrjið bökuform, látið degið yfir og skerið af sem þarf eða lagið svo deigið þekji allt formið og nái upp á kantana. Þegar kartöflurnar eru soðnar, leyfið þeim þá aðeins að kólna. Hærið eggin, bætið svo rjómanum út og hrærið betur, saltið og piprið ríkulega. Ég ákvað að bæta líka 1 tsk af paprikudufti og tsk af þurrkaðari steinselju en því má sleppa. Hrærið múskati út í spínatið og dreifið því yfir deigið. Raðið svo kartöflunum jafn yfir, hellið svo rjómablöndunni yfir. Dreifið svo osti jafn yfir. Bakið í ca. 30 mín. eða þangað til þetta tekur á sig fallegan lit.
- Aftur á forsíðu

Gerði þessa snilldarböku og hafði hana líka í barnaafmæli hjá mér, þvílíkt lostæti!
Takk fyrir uppskriftina