
Þeir sem þekkja okkur hjónin vita að við erum mikið risotto fólk og elskum að prófa nýjar útgáfur af því. Þá er það nú yfirleitt um helgar og því svona meiri sparíréttur en hitt. Þessi er kannski í dýrari kantinum en alveg þess virði og skemmtilegur til að bjóða gestum upp á. Ég á pínu erfitt með að lýsa ferlinu þegar maður gerir risotto og mæli jafnvel með að ef maður hefur ekki gert risotto áður, þá er kannski betra að gera fyrst uppskrift úr bók sem er nákvæm og svo er auðvitað netið fullt af fróðleik.Með þeim orðum segi ég góða helgi! Mín verður krydduð með slatta af góðgæti, mikilli hvíld, dashi af góðum félagsskap og lúku af heimsóknum….
„Antipasto“ papriku risotto með rósmarín
- Ca. 50 g smjör
- 2 rauðlaukur
- 2 hvítlauksrif, kramið
- 3 dl risottogrjón (ég nota arborio)
- 2 msk ferskt rósmarín
- 600 ml grænmetissoð
- 2 dl hvítvín (má sleppa og nota meira soð)
- 1 krukka af antipasto papriku (paprikur í krukku)
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 100 g spínat
- paramesan ostur
Hitið smjörið í potti, bætið út í rauðlauk og hvítlauk, mýkjið í 1-2 mín, bætið þá hrísgrjónum og rósmarín, mýkjið í 2-3 mín. Hellið þá fyrst hvítvíni yfir ef það er notað, leyfið grjónunum að drekka það í sig og bætið svo ca.1/3 af soðinu út í, munið að galdurinn við risotto er að það þarf endalaust að hræra í og helst ekki fara frá því. Bætið svo tómötunum út í, leyfa því að blandast vel og svo bæta alltaf smá soði út í þegar vökvinn virðist hafa gufað upp. Ef soðið er búið og það virðist vanta meira , bætið þá bara smá vatni eða gerið jafnvel örlítið meira soð, mig minnir að hlutföllin hafi verið svona en kannski þarf 1-2 dl af soði í viðbót. Þegar þetta er orðið að góðri „blöndu“ bætið þá út í paprikum og spínati, leyfið að malla í 5 mín. Endið svo með að hræra slatta af paramesan út í, látið á diska og smá ost yfir. Skreytið jafnvel með rósmaríngrein.
- Aftur á forsíðu
