Category Archives: Eftirréttir og góðgæti

Steikt eggjabrauð með rjómaosti, bláberjum, sírópi og ristuðum möndluflögum

on mars 20, 2010 3 Comments

Leyfið mér að kynna hin fullkomna sunnudagsmorgunmat! Þessa uppskrift rakst ég á í útlensku óléttublaði. Er með nokkur blöð í láni en einhvern veginn hef ég bara rétt nennt að glugga í þau, eitthvað annað en á fyrstu meðgöngu þegar maður bókstaflega drakk í sig allan fróðleik sem maður komst yfir. En já, rakst á [...]

Lavander/sítrónu kökur og skonsur

on febrúar 14, 2010 5 Comments

Sat eitthvert kvöldið við sjónvarpsgláp sem hefur því miður færst í aukana eftir að ég varð ólétt. Í einum þættinum var verið að bjóða upp á lavander og sítrónukökur og það var eins og við manninn mælt, ég fékk þetta á heilann og gat ekki hætt að hugsa um þessar kökur. Endaði með að finna [...]

Grandmarinerís og hindberjasorbet

on janúar 22, 2010 1 Comment

Og þá er komin föstudagur aftur. Eins og ég get andvarpað mikið á
sunnudagskvöldum yfir því að helgin sé strax búin þá finnst mér vikan sem
betur fer fljót að líða. Ég hafði planað flókna matargerð í kvöld fyrir
bóndann en hef nú ákveðið að einfalda þetta aðeins og ætla að gera
Ravíolí með salvíu og furuhnetu [...]

Mangó- og skyr eftirréttur

on janúar 14, 2010 Leave a Comment

MM, mangó, súkkulaði, skyr ofl….

Ferskjusalat er ágætis forréttur

Hey, hver saknar ekki skyr auglýsingana þar sem útlendingar eru að leita af skyri (djók)
Hér er ein uppskrift sem ég klippti út úr blaði fyrir nokkrum árum. Skyr er gott og mjög skemmtilegt að gefa útlenskum vinum í eftirrétt. Kajsa, vinkona mín frá Vesterås í Svíþjóð og fyrrum [...]

Oft þarf ekki mikið til að gleðja

on janúar 14, 2010 Leave a Comment

Hélt brunch fyrir nokkrar vinkonur um daginn. Hafði verið að vinna á úrslitum Músiktilrauna kvöldið áður og því tekið meðvitaða ákvörðun um að halda myndarskapnum í lágmarki og hafa þægindin í hámarki. Þ.e. keypti bara það sem þurfti (stelpur, bíð næst upp á eggjahræru, pönnukökur og annað góðgæti) Og hjúkk, því ég var orðin frekar [...]

Also posted in Ýmislegt

Sumarlegt spaghetti og rosalegur eftirréttur

on desember 29, 2009 Leave a Comment

Hér kemur fyrsta uppskriftin í langan tíma. Við fengum góða gesti í heimsókn í íbúðina góðu sem við fengum lánaða í Gautaborg, þau Eyrúnu og Collin en við kynntumst þeim þegar við bjuggum hérna, Eyrún er íslensk eins og nafnið gefur til kynna en hefur búið í Gautborg meira eða minna alla sína ævi og [...]

Also posted in Pastaréttir

Hafragúdís

on janúar 1, 2009 Leave a Comment

Ég fékk uppskriftina af Havre godies/ hafrasælgæti (hafragúdís) í Ica búðinni sem var hliðina á þar sem við bjuggum í Majorna í Gautó. Þetta hef ég gert ótal oft, stundum með smá breytingum ef ég á ekki allt í þetta og þetta er rosalega gott. Er alltaf á leiðinni að prófa að gera þetta á [...]



Síður

Flokkar

Gamlar færslur

RSS

Notandi