Matur er manns gaman

Sesam- og linsubaunabuff með jógúrtsósu
Síðustu vikur hefur lítið farið fyrir eldamennsku og myndarlegheitum á þessu heimili en það mun sko brátt breytast þegar við fjölskyldan erum flutt, barnið komið útúr maganum á mér og ég komin í fæðingarorlof. Ekki skemmir fyrir að brátt get ég notað nýju uppþvottavélina mína. Mikið mun hún nú létta störfin, þá sérstaklega þegar góða gesti ber að garði. Hef sjaldan verið jafn spennt fyrir nýju tæki.

Langaði að elda „síðustu kvöldmáltíðina“ á Skúlagötu því næstu dagar fara í pökkun/þrif og flutningastúss. Gerðum einnig smá brunch fyrir okkur litlu fjölskylduna í morgun og heimasætan fékk að hjálpa til við eggjahræru og pönnukökugerð. Pínu tilfinninganæmi kom upp, enda margar góðar minningar en við keyptum þessa íbúð fyrir 11 árum. En það er kominn tími á breytingar og stundum koma þær í stórum skömmtum.

Ekki láta þennan langa innhaldslista hræða ykkur, það tekur alltaf smá tíma  þegar maður gerir eitthvað í fyrsta skipti en þetta er frekar auðvelt og  ofsalega gott. Þessi uppskrift er úr frábærri sænskri uppskriftabók, Veggie. Tók of seint eftir að þetta er frekar stór uppskrift en ég frysti bara afganginn af buffunum.

Sesam- og linsubaunabuff með jógúrtsósu

(Síðasta kvöldmáltíðin á Skúló)

2 1/2 dl grænar linsur eða gourmet linsur (skolaðar)

5 dl vatn

2 lárviðarlauf

3 msk ólífuolía

1 stór laukur (smátt skorinn)

2 sellerístilkar( í litlum teningum)

2,5 cm ferskt engifer (rifið)

1/2 tsk chiliflögur

100 g sesamfræ

1 1/2 dl brauðrasp

1 tsk cumin

1/2 tsk turmeric

lúka af steinselju (hökkuð)

2 msk sítrónusafi

1 tsk salt eða eftir smekk

Jógúrtsósa

200 g hreint jógúrt

1 tsk cumin

1 tsk koriander (átti það ekki til)

1 msk sítrónusafi

smá salt og pipar

Látið linsunar ásamt vatni og lárviðarlaufum í pott með loki og fáið upp suðu. Látið sjóða í smá tíma og lækkið síðan hitann, látið malla í 20-30mín eða þangað til þær eru nokkuð mjúkar en alls ekki maukaðar. Hellið vatni af.

Á meðan linsurnar malla þá skerið allt niður sem þarf að skera. Undirbúið jógúrtsósuna. Þegar linsurnar hafa verið í pottinum í ca. 15 mín, byrjið þá að steikja laukinn í potti, bætið svo við sellerí, mýkið í 3 mín, bætið þá útí engiferi, cumin, turmeric, chiliflögum,sesamfræjum og brauðraspi. Hrærið og takið af heitri plötunni eftir 1-2 mín. Bætið þá útí linsum, sítrónusafa, salti og steinselju. Hrærið saman og notið síðan töfrasprota (annars matvinnsluvél) til að mixa þessu saman en samt ekki alveg að mauki.

Mótið um 12 buff, steikið á pönnu á meðalháum hita, 2-3 mín á hvorri hlið eða þangað til gyllt og girnilegt. Ég bar þetta svo fram með forsoðnum parísarkartöflum (letikartöflur) sem ég steikti rétt í smá smjöri og tómata/snjóbauna/steinselju salati með skvettu af olífuolíu, sítrónu og hafsalti.

Lime risotto med sætum kartöflum
Það er í raun ótrúlegt að þessi uppskrift hafi ekki komið hér inn fyrr. Þessi risottoréttur hefur verið gerður í mörg ár á heimilinu og margir væntanlega fengið svona hjá okkur, einfaldur og góður. Einhvern tíma gaf ég þessa uppskrift upp í Fréttablaðinu og gaman að segja frá því að móðurbróðir Eldars ákvað að elda þetta handa familínni þegar hann sá þetta í blaðinu…nema hvað að hann blandaði víst saman 2 uppskriftum sem voru á blaðsíðunni þannig að eitthvað fór í rugl og fjölskyldan borðaði víst seint og síðar meir einhvern skrítinn rétt og mér örugglega bölvað það kvöldið.

Lime risotto með sætum kartöflum fyrir 2

2 stórar sætar kartöflur

olífuolía

2 dl avorioris (kaupi yfirleitt í Nóatúni eða Hagkaup)

5-6 dl grænmetissoð (soðið vatn og 1 teningur, hvítvín gott líka)

1 gulur laukur

1 hvítlauksrif

1 dl rifinn paramesan ostur

1-2 lime

smjör

salt og pipar

Gera:

Setjið ofninn á 200, skrælið og skerið kartöflur í teninga. Látið í smurt eldfast mót, skvettið smá olíu yfir og inn í ca. 30-40 mín. Hrærið í, einu sinni eða tvisvar. Kryddið svo með salti og pipar og jafnvel með fersku eða þurrkuðu oregano.

Skerið smátt, lauk og hvítlauk, mýkjið í smjörinu með grjónum þannig að þau verða hálfglær, hellið síðan yfir grænmetissoðinu, smá skvettu í einu. Þetta getur verið pínu vandmeðfarið og maður verður eiginlega að standa yfir þessu og láta sjóða og hæra reglulega í áður en næsta skvetta fer í. Gerið þetta í ca.15-20 mín. Áferðin á að verða mjúk, creamy og svona næstum seig.

Rífið limebörk, pressið ca 1 msk af limesafa út í risottoið. Bragðbætið með salti og pipar og jafnvel meiri safa. Hrærið að síðustu ostinum út í. Rífið yfir limebörk og ost.

Ítölsk páskabaka
Hér er gömul færsla frá gamla blogginu mínu en þessi baka er bara svo frábær viðbót við átveisluna sem páskarnir eru svo ég leyfi bara gömlu færslunni að vera með enda gaman að rifja upp hvað maður var að gera fyrir ári. Gleðilega páska!

Jæja, enn og aftur komnir páskar. Ég held voða mikið upp á páskana. Birtan er yfirleitt svo falleg á þessum tíma, týpískt gluggaveður má segja. Hef átt afmæli stundum á páskadag, m.a. á tvítugsafmælinu sem er mér eftirminnilegt. Ákváðum loks að láta verða af því að fara á hina frábæru hátíð, Aldrei fór ég suður. Ætluðum öll fjölskyldan að fara. För var frestað á Skírdag þegar Saga var veik. Og enn var hún veik á föstudeginum svo við hjónin flugum vestur og hún í góðum höndum tengdó.  Í stuttu máli, urðum líka fárveik og ég sá lítið meira en hótelherbergið og við snerum tilbaka daginn eftir.  Hér kemur uppskrift af páskaböku frá Piedmont héraði á N-Ítalíu. Gerði þessa á Skírdag og telst því til páskamats. Þetta tekur smá tíma en höfum við tíma til að horfa á sjónvarp eða hanga í tölvunni,  þá höfum við nú örugglega smá tíma í matseld um páskana. (Talað beint frá sjónvarps- og tölvu frúnni)

Ítölsk Páskabaka

85 g klettasalat

1 laukur, saxaður

2 hvítlauksrif, söxuð

200 g arborio risotto grjón

7 dl grænmetissoð

1 1/4 dl hvítvín (má sleppa)

50 g rifinn paramesan

120 g frosnar grænar baunir

2 tómatar, skornir í teninga

4 egg, vispuð

3 msk marjoram, saxað (2-3 tsk þurrkað)

55 g brauðrasp

Hitið ca. 2 msk af ólífuolíu á pönnu og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í 4-5mín. Skellið grjónunum útí, leyfið grjónunum að verða „gegnsæ“ og byrjið þá að hella yfir vökvanum, koll af kolli og leyfið vökvanum að gufa upp áður en meiru er hellt yfir, muna að hræra vel. Látið svo vínið yfir þegar á líður (ef vín er ekki notað þá nota bara aðeins meira soð)

Þegar risottoið virðist tilbúið, þá bæta út í  osti, baunum, klettasalati, tómötum, eggjum og 2 msk af marjoram. Saltið og piprið vel og hrærið öllu vel saman.

Látið í djúpt kökuform sem búið er að smyrja með smjöri og þjappið blöndunni í formið. Stráið brauðraspinu og 1 msk af marjoram yfir.

Bakið í 180 C í 30-40 mín eða þangað til raspið verður gullið. Berið fram með góðu salati.

Steikt eggjabrauð með rjómaosti, bláberjum, sírópi og ristuðum möndluflögum
Leyfið mér að kynna hin fullkomna sunnudagsmorgunmat! Þessa uppskrift rakst ég á í útlensku óléttublaði. Er með nokkur blöð í láni en einhvern veginn hef ég bara rétt nennt að glugga í þau, eitthvað annað en á fyrstu meðgöngu þegar maður bókstaflega drakk í sig allan fróðleik sem maður komst yfir. En já, rakst á þessa girnilegu uppskrift og var ekki róleg fyrir en búið var að prófa þetta. Þetta er auðvitað alveg dísætt en engu að síður yndislegt á fallegum sunnudagsmorgni.

Steikt eggjabrauð með rjómaosti, bláberjum, sírópi og ristuðum möndluflögum

1 lítill bláberjabakki (held að hann sé 100g)

Hreinn rjómaostur

2 egg

2 eggjahvítur

2 msk hunang

4 sneiðar heilhveitibrauð

30 g ósaltað smjör

Hlynssíróp

2 msk möndluflögur

Pískið saman egg, eggjahvítur, mjólk og hunang. Hitið smjörið á pönnu, við notuðum grillpönnu. Dýfið brauði í blöndu og steikið þangað til að þetta fær á sig lit. Á sama tíma, ristið möndluflögur þangað til að þær taka á sig smá lit. Smyrjið svo 2 brauðsneiðar ríkulega með smurostinum, látið fullt af bláberjum á milli og smellið saman. Skerið í tvennt,  hellið svo sírópi yfir og stráið að lokum möndluflögum yfir. Lokið augunum og njótið þess að bíta í, og njótið þess að vera til!

„Antipasto“papriku risotto með rósmarín
Þeir sem þekkja okkur hjónin vita að við erum mikið risotto fólk og elskum að prófa nýjar útgáfur af því. Þá er það nú yfirleitt um helgar og því svona meiri sparíréttur en hitt. Þessi er kannski í dýrari kantinum en alveg þess virði og skemmtilegur til að bjóða gestum upp á. Ég á pínu erfitt með að lýsa ferlinu þegar maður gerir risotto og mæli jafnvel með að ef maður hefur ekki gert risotto áður, þá er kannski betra að gera fyrst uppskrift úr bók sem er nákvæm og svo er auðvitað netið fullt af fróðleik.Með þeim orðum segi ég góða helgi! Mín verður krydduð með slatta af góðgæti, mikilli hvíld, dashi af góðum félagsskap og lúku af heimsóknum….

„Antipasto“ papriku risotto með rósmarín

Ca. 50 g smjör

2 rauðlaukur

2 hvítlauksrif, kramið

3 dl risottogrjón (ég nota arborio)

2 msk ferskt rósmarín

600 ml grænmetissoð

2 dl hvítvín (má sleppa og nota meira soð)

1 krukka af antipasto papriku (paprikur í krukku)

1 dós hakkaðir tómatar

100 g spínat

paramesan ostur

Hitið smjörið í potti, bætið út í rauðlauk og hvítlauk, mýkjið í 1-2 mín, bætið þá hrísgrjónum og rósmarín, mýkjið í 2-3 mín. Hellið þá fyrst hvítvíni yfir ef það er notað, leyfið grjónunum að drekka það í sig og bætið svo ca.1/3 af soðinu út í, munið að galdurinn við risotto er að það þarf endalaust að hræra í og helst ekki fara frá því. Bætið svo tómötunum út í, leyfa því að blandast vel og svo bæta alltaf smá soði út í þegar vökvinn virðist hafa gufað upp. Ef soðið er búið og það virðist vanta meira , bætið þá bara smá vatni eða gerið jafnvel örlítið meira soð, mig minnir að hlutföllin hafi verið svona en kannski þarf 1-2 dl af soði í viðbót. Þegar þetta er orðið að góðri „blöndu“ bætið þá út í paprikum og spínati, leyfið að malla í 5 mín.  Endið svo með að hræra slatta af paramesan út í, látið á diska og smá ost yfir. Skreytið jafnvel með rósmaríngrein.

Baka með sætum kartöflum
Þessa böku fékk ég fyrst hjá Kristínu Boland, vinkonu minni og matgæðingi í Mosó. Ákvað að bjóða upp á svona í afmælinu hennar Sögu og var hún fljót að klárast. Ég er frekar löt og finnst mjög þreytandi að vinna með deig svo ég kaupi bara svona smjördeigsrúllur, fæ þær stundum í Bónus, frá sama merki og pizzarúlludeig sem er í kælinum. Mjög þægilegt og fljótlegt.

Baka með sætum kartöflum

150 g frosið spínat (þíða og kremja úr vökva) (hef líka sleppt spínati)

1 stór eða 2 miðlungs sætar kartöflur, skornar í teninga

3 egg

150 g rjómi eða matreiðslurjómi

slatti af ost, ég notaði fetaost og rifin, dreifa jafnt yfir, jafnvel skera aðeins fetan

salt og pipar

1/2 tsk múskat

Sjóðið kartöfluteningana en gætið þess að þær verði ekki of mjúkar. Hitið ofninn í 200° Ég lét síðan sjóðandi vatn yfir spínatið, og kramdi svo vökvan úr með kartöflupressu. Smyrjið bökuform, látið degið yfir og skerið af sem þarf eða lagið svo deigið þekji allt formið og nái upp á kantana. Þegar kartöflurnar eru soðnar, leyfið þeim þá aðeins að kólna. Hærið eggin, bætið svo rjómanum út og hrærið betur, saltið og piprið ríkulega. Ég ákvað að bæta líka 1 tsk af paprikudufti og tsk af þurrkaðari steinselju en því má sleppa.  Hrærið múskati út í spínatið og dreifið því yfir deigið. Raðið svo kartöflunum jafn yfir, hellið svo rjómablöndunni yfir. Dreifið svo osti jafn yfir. Bakið í ca. 30 mín. eða þangað til þetta tekur á sig fallegan lit.

Indverskt linsupaté
Gleðilegan föstudag! Upp á síðkastið hef ég verið fremur sólgin í indverskan mat og hef því verið að prófa ýmsar útgáfur. Lengi langað að útbúa linsubauna paté og ákvað að hafa það með indversku ívafi. Þetta tók smá tíma, þá aðallega tíminn inni í ofni en mér fannst það alveg þess virði. Reyndar var æsingurinn svo mikill í mér að í stað þess að leyfa þessu að kólna aðeins þá skar ég strax í og fyrir vikið leit þetta út eins og linsuhrúga en seinna um kvöldið gat maður skorið fallega sneið. Svo ég mæli með smá auka þolinmæði og leyfa þessu rétt að standa út í glugga áður það er borið fram.

Indverskt linsupaté

1 msk olía

1 laukur, smátt skorin

2 hvítlauksrif

180 g rauðar linsur

7dl grænmetissoð (heitt vatn og notaði 1 grænm.ten)

1tsk garam masala (ef ekki til, td. smá karrí,cumin,kanel)

1/2 tsk coriander

1 egg

2 msk mjólk

2 msk mangó chutney

2 msk steinselja

pipar/salt

Hitið ofninn í 180°. Mýkjið lauk og hvítlauk í potti, bætið svo út í linsum, hrærið í mínútu og hellið svo soði yfir. Fáið upp suðu og látið malla í ca.7- 10 mín(minnir það) eða þangað til þetta er smá grautur(hellið af aukavatni ef þarf). Þá taka til hliðar og leyfa þessu aðeins að kólna. Látið svo í matvinnsluvél (örugglega hægt að nota sprota) og bætið öllu öðru út í. Hærið þangað til vel blandað. Látið blönduna í smurt brauðform eða með smjörpappír í, getur verið gott og hafa það vel upp á hliðarnar svo þið getið bara vippað þessu upp úr. Ég var örugglega með þetta í ofninum í klukkutíma, enda með lélegan ofn svo bara fylgist með þessu eftir 45 mín, getið stungið í þetta eins og um brauð væri að ræða. Leyfið þessu að kólna og berið fram með ljúffengum grjónum, chutney, rajitu og jafnvel naan brauði og svo get ég ekki hætt að lofsama pataks pickles (fæst td. í Nótatúni og Melabúðinni) Einnig finnst mér alltaf gott að hafa tómata og gúrkusalat með en hefði nú kannski mátt skera þetta smærra, meira smart, oh well. Verði ykkur að góðu!

Lavander/sítrónu kökur og skonsur
Sat eitthvert kvöldið við sjónvarpsgláp sem hefur því miður færst í aukana eftir að ég varð ólétt. Í einum þættinum var verið að bjóða upp á lavander og sítrónukökur og það var eins og við manninn mælt, ég fékk þetta á heilann og gat ekki hætt að hugsa um þessar kökur. Endaði með að finna ágætis uppskrift á netinu. Þurrkaðan lavander fékk ég í kryddhillunni í hinni frábæru búð, Tiger. Svo var bara að baka og tilefnið ekki af verri endanum. Átti von á nokkrum góðum vinkonum, köllum þessi kvöld Afruglarann þar sem við hittumst, borðum, drekkum te og stundum sterkara en að mestu er talað út í eitt. Kökurnar komu sterkar inn og afgangana át samstarfsfólk mitt í Hinu Húsinu með góðri lyst. Og lavander æðið hætti ekki þarna heldur bakaði ég nokkrum dögum seinna lavander skonsur sem ég færði ömmu og afa Eldars. Tók enga mynd því mér fannst þær ekki líta vel út en þær brögðuðust mjög vel, læt uppskriftina fylgja með.

Lavander/sítrónu kökur

200 gr smjör (búið að standa í „herbergishita“)

3,5 dl sigtað hveiti

1 1/2 dl flórsykur

1 eggjarauða

1 msk þurrkaður lavander

rifinn börkur af einni sítrónu

3 msk maizena mjöl

salt á hnífsoddi (pinch of salt)

Sigtið hveiti og maizena, setjið til hliðar. Hrærið saman smjör og flórsykur þangað til vel blandað (ég notaði handþeytara). Bætið útí eggjarauðu,salti, lavander og berki. Bætið út í hveitiblöndu og hrærið saman með sleif þangað til vel blandað, á að vera frekar þétt. Búið til „deigbolta“ úr deginu, skiptið í tvennt og pakkið inn í sitthvora plastfilmuna og leyfið að standa í kæli í 30 mín. Í flýtingi tók ég ekkert eftir síðasta hluta og lét því aldrei einn í ískáp en mun þó gera það næst. Ok já, gott að lesa uppskrift almennilega núna, haha, svo átti víst að taka þetta út og rúlla báðum hlutum í svona tvo sívalinga/rúllur og kæla aftur í 2 tíma eða yfir nótt og einnig má frysta þetta í allt að mánuð áður en notað er. Anyways, ég skar svo hvora rúllu um sig í ca. 10-12 kökur svo samanlagt voru þær ca. 24. Bakaði þær í 180 gráðu heitum ofni í ca. 12-14 mínútur eða þangað til að þær urðu gylltar og tóku á sig smá lit. Leyfði þeim aðeins að kólna áður en ég bar þær fram. Ofsalega gott með góðu te og væntanlega kaffi.

Skonsur með lavander

Mig langaði svo í skonsur en það var afar takamarkað til af hráefnum, lítið smjör, engin egg en sumar uppskriftir innhalda þau osfrv. Einnig var til rétt rúmur dl af léttmjólk. Ég endaði á að nota smá ab mjólk svo ég ætti smá mjólk til að pensla skonsurnar. Uppskriftin sem ég endaði á að fara eftir er eftir meistara Nönnu Rögnvalds og einmitt bloggara hér á Miðjunni. Ég vona að henni mislíki ekki að ég gefi bara upp slóðina á hennar góðu skonsur. Ath, ég bætti svo út í 2 tsk af lavander út í.

Úbs, var að prófa hlekkinn og hann virkar ekki því uppskriftina var að finna á snara.is sem er lokuð áskriftarsíða, gat einhverra hluta vegna skoðað uppskriftir þar um daginn og núna get ég ekki séð uppskriftina svo mæli bara með að finna eina góða uppskrift og bæta svo út í lavander….

Skonsurnar hennar Nönnu + smá lavander út í

Möndlu- og chili spaghettí
Eins og ég hef nefnt í eldri færslu, þá eru mánudagar oftast pastadagar og þriðjudagar súpudagar á heimilinu. Ég er frekar heilalaus eftir vinnu þá daga og þá gott að vera búin að þrengja valið aðeins. Ég gef sjaldan upp fyrir hversu marga uppskriftirnar eru en ætla að reyna að hafa það í huga. Oftast er ég þó að elda fyrir okkar þriggja manna fjölskyldu og þá með það í huga að maður geti fengið sér ábót, enda er það alveg nauðsynlegt fyrir matargat eins og mig.

Möndlu- og chili spaghettí varð niðurstaðan einn mánudag í janúar og verður gert aftur. Ég elska chili og ég elska möndlur svo það kom ekki á óvart. Heimasætan er aftur á móti á tómatsósu tímabilinu og vonandi eldist það bara af henni. Ég nota Sambal Olek , chilimauk sem ég kaupi venjulega í asísku búðinni við Hlemm og nota í súpur og ýmislegt annað. En það má alveg nota ferskan chili, kannski hálfan til heilan um leið og hvítlaukurinn er steiktur. Held að þetta hafi verið nokkurn veginn svona:

Möndlu- og chili spaghettí

Ca. 300 gr spaghetti (ég notaði heilhveiti)

3-4 tómatar

1 hvítlauksrif

1 1/2 msk ólífuolía

2 dl fersk basilika (ca. 2-3 tsk þurrkuð giska ég á?)

1/2 til heil tsk sambal olek (smakkið ykkur áfram)

1/2 tsk salt

1 dl möndlur (ég notaði flögur)

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Hitið olíu og steikið tómatana og hvítlaukinn, leyfið aðeins að malla þangað til vökvinn byrjar að aukast frá tómötunum, bætið þá sambal olek út í og rífið basilikuna útí(geymið smá til „skreytingar), saltið, hrærið í og lækkið hitann. Á sama tíma, ristið möndlur á pönnu þangað til að þær taka smá lit á sig. Hellið af pastanu, látið standa í 1 mín. Hellið ólífuolíu yfir spaghettíð og hrærið lauslega í gegnum. Setjið á diska, látið tómatchiliblöndu með möndlunum yfir og að lokum stráið smá ferskri basiliku yfir ef notuð. Maðurinn minn notaði paramesan yfir en ég vildi sleppa því í þetta skiptið.

Eggjakaka með indversku ívafi
Hér kemur ein ágætis „í miðri viku dálítið holl en góð“ uppskrift.  Veit ekki hvort eggjabaka sé betra nafn? Þetta varð alla vega útkoman og rann þetta vel ofan í heimilisfólkið, ja í tvo af þremur. Heimasætan er orðin heldur dyntótt þegar kemur að matmálstímum og við foreldrarnir alveg á leiðinni að taka á málinu! Uppskriftir í vinnslu: heilhveitispaghetti með chili og möndluflögum, risotto með grilluðum paprikum og rósmarín og sítrónu/lavanderkökur

Eggjakaka með indversku ívafi

2 dl soðnar rauðar linsur

1 laukur

2 hvítlauksrif

hálf púrra

2 gulrætur, gróft rifnar

1 – 2 msk karrí

1 tsk cumin

1/2 tsk chayenne

4 egg

slatti af salt og pipar

Sjóðið linsurnar en ekki þannig að þær verði alveg að mauki. Setjið ofninn á 225¨°.

steikið lauk, blaðlauk og hvítlauk og látið svo krydd yfir og gulrætur og steikið aðeins lengur. Bætið svo linsum útí þegar búið er að hella af þeim, ef þarf. Pískið eggin og hrærið svo lauk/linsuhrærunni rólega útí. Skellið þessu í smurt bökuform. Bakið í 10-15 mín. Gott að bera fram með ruccola, grænum eplum og hreinni jógúrt.